Marco Silva áfram hjá Fulham (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski stjórinn Marco Silva hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham.
Silva var ráðinn til félagsins fyrir tveimur árum, þá í ensku B-deildinni, en hann stýrði liðinu upp í úrvalsdeildina á fyrsta tímabili.
Á síðasta tímabili hafnaði liðið í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, en hann var nálægt því að yfirgefa félagið í sumar.
Félög í Sádi-Arabíu vildu fá Silva og voru tilbúin að bjóða honum 40 milljónir punda yfir tvö ár, en hann ákvað að vera áfram í Lundúnum.
Portúgalinn hefur nú skrifað undir nýjan þriggja ára samning sem gildir út tímabilið 2025-2026.
Fulham situr í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir níu leiki.