Maurice Steijn rekinn frá Ajax (Staðfest)

Maurice Steijn.

Mynd: EPA

Maurice Steijn.

Mynd: EPA
Stuðningsmenn Ajax hafa tekið þeim fregnum sem voru að berast fagnandi en búið er að reka þjálfarann Maurice Steijn úr starfi.
Steijn, sem er 49 ára gamall, var ráðinn stjóri Ajax fyrir tímabilið. Sú ráðning vakti ákveðna furðu en hann var áður þjálfari hjá Sparta Rotterdam, NAC Breda og Al Wahda í Abú Dabí.
Ajax hefur byrjað tímabilið hörmulega, en liðið er sem stendur í 17. sæti af 18 í hollensku úrvalsdeildinni eftir tap gegn Utrecht í gær, sunnudag. Þetta er ekki boðlegur árangur fyrir Ajax og hefur stjórn félagsins ákveðið að grípa í taumanna.
„Ég mun halda áfram að berjast við að snúa hlutunum við fyrir þetta félag. Ég finn fyrir stuðningi og ég held að ég verði áfram stjóri liðsins," sagði Steijn í gær en núna er búið að reka hann.