Fotbolti.net
21.10.23 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Dusan Brkovic í FH (Staðfest)

Dusan Brkovic í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er búið að klófesta serbneska varnarmanninn Dusan Brkovic sem kemur til félagsins úr röðum KA.
Dusan er 34 ára gamall og hefur spilað 82 keppnisleiki á þremur árum hjá KA.

Hann gerir eins árs samning við FH og mun því hjálpa Hafnfirðingum í Bestu deildinni á næstu leiktíð.

FH endaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar í haust, með 40 stig úr 27 umferðum.

KA fékk fleiri stig heldur en FH, 41 talsins, en endaði þrátt fyrir það í sjöunda sæti. Það er vegna þess að liðinu mistókst að tryggja sér sæti í efri hlutanum eftir tvískiptingu deildarinnar að 22 umferðum loknum.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.