Kristófer Páll skiptir alfarið í Reyni (Staðfest) - Benedikt framlengir

Mynd: Reynir Sandgerði

Mynd: Reynir Sandgerði
Sandgerðingar tilkynntu í dag að þeir Kristófer Páll Viðarsson og Benedikt Jónsson verða áfram hjá liðinu. Þeir hafa báðir skrifað undir samning sem gilda út tímabilið 2025.
Benedikt er fæddur árið 1997. „Varnarjaxlinn Benni hefur leikið með félaginu frá árinu 2020 og á að baki 87 leiki fyrir Reyni. Hann bar fyrirliðabandið í sumar og leiddi liðið glæsilega til sigurs í 3. deild karla," segir í tilkynningu Reynis.

Kristófer Páll er sömuleiðis fæddur árið 1997. Hann var á láni frá Grindavík síðasta sumar og átti eitt ár eftir af samningi sínum í Grindavík. Þrátt fyrir það skiptir hann nú alfarið í Reyni.
„Kristófer kom fyrst til Reynis árið 2021 og á að baki 54 leiki fyrir félagið og hefur skorað í þeim 34 mörk. Hann skipti yfir til Grindavíkur fyrir tímabilið 2022 og kom til okkar á láni í sumar. Hann gengur nú alfarið yfir í Reyni og verður hjá okkur næstu tvö árin," segir í tilkynningunni.
Reynir vann 3. deildina í sumar og verður því í 2. deild á komandi tímabili. Benedikt og Kristófer voru báðir valdnir í lið ársins í 3. deild og var Kristófer valinn besti leikmaður 3. deildar tímabilið 2023.

TENGT EFNI