Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24442 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR09.10.2023, 17:05

Oliver Ekroth hjá Víkingi til 2026 (Staðfest)

Víkingar tilkynntu á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu að Oliver Ekroth hefði skrifað undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við félagið, gildir samningurinn út 2026. Sænski miðvörðurinn hefur verið algjör lykilmaður frá komu sinni til Víkings fyrir tímabilið 2022 og í sumar var hann einn allra besti varnarmaður deildarinnar og í liði ársins hér á Fótbolti.net.

FRÉTTIR09.10.2023, 16:09

Dofri Snorrason leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Dofri Snorrason hefur lagt skóna á hilluna eftir þrettán tímabil í meistaraflokki. Frá þessu var fyrst greint í íslenska slúðurpakkanum og Dofri staðfesti tíðindin í dag við fréttamann Fótbolta.net. Dofri varð 33 ára í sumar og hefur á sínum ferli leikið með KR, Víkingi, Selfossi og síðast Fjölni á sínum ferli.

FRÉTTIR09.10.2023, 13:22

Eetu Mömmö og Dani Hatakka farnir frá FH (Staðfest)

Finnarnir Eetu Mömmö og Dani Hatakka verða ekki áfram í herbúðum FH á næstu leiktíð. Þetta staðfestir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, í samtali við Fótbolta.net í dag.

FRÉTTIR08.10.2023, 19:15

Bowen hjá West Ham til 2030 (Staðfest)

Jarrod Bowen hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við West Ham. Hann var á samning hjá liðinu til ársins 2025 en hefur framlengt hann til ársins 2030.

FRÉTTIR08.10.2023, 17:28

Dóri Árna ráðinn þjálfari Breiðabliks (Staðfest) - Þriggja ára samningur

Halldór Árnason hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Halldór tekur við af Óskari Hrafni Þorvaldssyni sem var látinn fara í dag. Halldór var aðstoðarþjálfari í þjálfaratíð Óskars og unnu þeir áður saman hjá Gróttu. Þetta er annað aðalþjálfarastarf Halldórs á hans ferli en hann var þjálfari KV á árunum 2012-14.

FRÉTTIR08.10.2023, 16:15

Óskar Hrafn hættur með Breiðablik (Staðfest)

Óskar Hrafn Þorvaldsson er hættur með Breiðablik en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Óskar stýrði liðinu í fjögur tímabil og vann hann Íslandsmeistaratitilinn í fyrra eftir að hafa verið grátlega nálægt því tímabilið áður.

FRÉTTIR06.10.2023, 13:30

Branthwaite skrifaði undir nýjan samning við Everton (Staðfest)

Jarrad Branthwaite miðvörður Everton hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til sumarsins 2027. Branthwaite er 21 árs og kom á Goodison Park fræa Carlisle í janúar 2020. Hann lék á láni hjá Blackburn og PSV Eindhoven áður en hann festi sig í sessi hjá Everton á þessu tímabili. Branthwaite var orðaður við Manchester United en ákvað að skrifa undir nýjan samning. Hann var hluti af enska U21 landsliðinu sem vann EM í sumar.

FRÉTTIR06.10.2023, 12:17

John Andrews áfram þjálfari Víkings (Staðfest) - Kristófer Sigurgeirs aðstoðar

John Andrews hefur framlengt samning sinn við Víking og verður hann áfram þjálfari liðsins næstu tvö tímabilin. Í samningnum, sem tilkynnt var um í hádeginu í dag, er ákvæði um framlengingu. Á fréttamannafundi í Víkinni var greint frá því að Kristófer Sigurgeirsson verði John til aðstoðar, verði í fullu starfi sem aðstoðarþjálfari kvennaliðsins. Kristófer var áður aðstoðarmaður Ásmundar Arnarssonar hjá kvennaliði Breiðabliks. Hann tekur við starfinu af Þorsteini Magnússyni sem hefur söðlað um og samið við ÍA.

FRÉTTIR05.10.2023, 18:22

Binni Gests hættur hjá Þrótti Vogum (Staðfest)

Brynjar Þór Gestsson er hættur hjá Þrótti Vogum eftir að hafa stýrt félaginu síðustu tvö tímabil, en hóf fyrst störf hjá félaginu árið 2017 þegar Þróttarar voru í 3. deild. Hann hefur síðan þá hætt og verið ráðinn aftur í tvígang - fyrst 2020 og svo 2022.

FRÉTTIR05.10.2023, 14:15

Hrannar framlengir við KA (Staðfest)

Hrannar Björn Steingrímsson hefur ákveðið að framlengja samning sinn við KA en samningurinn átti að renna út eftir tímabilið. Í tilkynningu KA segir að Hrannar framlengi út 2025.

FRÉTTIR05.10.2023, 12:11

Patrick Pedersen framlengir við Val (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að félagið hefði framlengt samning sinn við Patrick Pedersen um tvö ár. Samningur danska framherjans var að renna út núna í haust. Hann verður 32 ára í nóvember. „Patrick sem kom fyrst að láni frá danska félaginu Vendsyssel FF 2013 til Vals sló strax í gegn á Hlíðarenda og skömmu síðar var gengið frá endanlegum félagsskiptum," segir í tilkynningu Vals.

FRÉTTIR04.10.2023, 10:38

Landsliðshópurinn: Gylfi valinn (Staðfest) - Aron í hópnum

Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, hefur valið hóp sem mætir Lúxemborg og Liechtenstein í undankeppni EM 2024. Leikirnir fara báðir fram á Laugardalsvelli. Ísland mætir fyrst Lúxemborg föstudaginn 13. október og Liechtenstein mánudaginn 16. október. Ísland þarf að vinna þessa báða leiki til að halda í einhverja von um að komast á EM í gegnum riðilinn.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.