Fotbolti.net
06.10.23 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Þorsteinn Magnússon ráðinn til ÍA (Staðfest)

Þorsteinn Magnússon ráðinn til ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz
ÍA hefur staðfest ráðningu á Þorsteini Magnússyni, gífurlega reyndum markmannsþjálfara sem mun meðal annars starfa sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna.
Þorsteinn mun einnig starfa sem markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna og yngri flokka, auk þess að sjá um leikgreiningar fyrir meistaraflokk.

Þorsteinn hefur meðal annars þjálfað hjá Kristianstad, Breiðabliki, ÍBV, Stjörnunni og Víking R. þar sem hann starfaði síðast sem aðstoðarþjálfari og markmannsþjálfari.

Þorsteinn hefur komið að markmannsþjálfun yngri landsliða Íslands frá U17 upp í U21 árs aldursflokk í bæði karla- og kvennaflokki.

ÍA endaði í öðru sæti 2. deildar kvenna í ár og spilar því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.