Fotbolti.net
05.10.23 - 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hrannar framlengir við KA (Staðfest)

Hrannar framlengir við KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Björn Steingrímsson hefur ákveðið að framlengja samning sinn við KA en samningurinn átti að renna út eftir tímabilið.

Í tilkynningu KA segir að Hrannar framlengi út 2025.
„Hrannar Björn mun leika sitt 11. tímabil fyrir KA næsta sumar. Hann hefur verið í stóru hlutverki hjá okkur og er það því jákvætt að hann verður áfram í gulu treyjunni," segir í tilkynningu KA.

Hrannar er 31 árs bakvörður sem getur bæði spilað hægra megin og vinstra megin í vörninni.

Hann hefur verið í lykilhlutverki í liði KA undanfarin ár og á hann yfir 200 leiki fyrir KA, 114 af þeim í efstu deild. Hrannar er uppalinn í Völsungi en söðlaði um og gekk í raðir KA fyrir tímabilið 2014.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.