Fotbolti.net
06.10.23 - 12:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

John Andrews áfram þjálfari Víkings (Staðfest) - Kristófer Sigurgeirs aðstoðar

John Andrews áfram þjálfari Víkings (Staðfest) - Kristófer Sigurgeirs aðstoðar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
John Andrews hefur framlengt samning sinn við Víking og verður hann áfram þjálfari liðsins næstu tvö tímabilin. Í samningnum, sem tilkynnt var um í hádeginu í dag, er ákvæði um framlengingu.

Á fréttamannafundi í Víkinni var greint frá því að Kristófer Sigurgeirsson verði John til aðstoðar, verði í fullu starfi sem aðstoðarþjálfari kvennaliðsins. Kristófer var áður aðstoðarmaður Ásmundar Arnarssonar hjá kvennaliði Breiðabliks. Hann tekur við starfinu af Þorsteini Magnússyni sem hefur söðlað um og samið við ÍA.
Víkingur átti frábært tímabil. Liðið hóf 2023 á því að vinna B-deild Lengjubikarsins og velgengnin hélt áfram inn í sumarið; liðið varð fyrsta kvennaliðið í næst efstu deild til að verða bikarmeistari og liðið tryggði sér í kjölfarið efsta sætið í Lengjudeildinni og spilar því í Bestu deildinni að ári.

John er 45 ára Íri sem kom fyrst til Íslands og spilaði með Aftureldingu á árunum 2008-2012. Hann þjálfaði meðfram því Hvíta riddarann og svo kvennalið Aftrueldingar.

Hann stýrði Aftureldingu tímabilin 2010-13 og tók næst við kvennaliði Völsungs. Hann var þjálfari Völsungs tímabilin 2018-19 og hélt í kjölfarið í Víkina og var að klára sitt fjórða tímabil þar í sumar.
Af fundinum í dag.

Af fundinum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.