Fotbolti.net
07.10.23 - 14:30
Aksentije Milisic

Bruno Guimaraes skrifaði undir nýjan fimm ára samning (Staðfest)

Bruno Guimaraes skrifaði undir nýjan fimm ára samning (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur tilkynnt það að Brassinn Bruno Guimaraes hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið.

Nýji samningurinn gildir til ársins 2028 en Bruno var keyptur til liðsins frá Lyon í janúar mánuði á síðasta ári.

Hann er 25 ára gamall og hefur reynst algjör lykilmaður í liði Newcastle og voru mörg stór lið á höttunum á eftir Bruno síðasta sumar.

Gamli samningur Bruno átti að renna út árið 2026 og eru þetta því mikil gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Newcastle. Liðið hefur farið mjög vel af stað á þessari leiktíð og vann það til að mynda magnaðan 4-1 sigur á PSG í Meistaradeild Evrópu í miðri viku.

Newcastle mætir West Ham á útivelli í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.