Bowen hjá West Ham til 2030 (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Jarrod Bowen hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við West Ham. Hann var á samning hjá liðinu til ársins 2025 en hefur framlengt hann til ársins 2030.
Bowen hefur spilað 167 leiki fyrir félagið síðan hann gekk til liðs við West Ham árið 2020 og komið að 78 mörkum. Liðið hefur unnið sér sæti í Evrópukeppni þrisvar síðan hann gekk til liðs við félagið og vann Sambandsdeildina á síðustu leiktíð og skoraði sigurmarkið.
„Ég er svo ánægður að hafa skrifað undir nýjan langtímasamning við West Ham. Allir vita hvaða þýðingu félagið hefur fyrir mig svo að framlengja samning minn til ársins 2030 þýðir svo mikið fyrir mig og fjölskyldu mína," sagði Bowen.
„Ég hef elskað hverja einustu mínútu hérna. Að vinna Sambandsdeildina í Prag var stórkostlegt augnablik, að skora sigurmarkið á síðustu mínútunni mun vera eitthvað sem ég mun þykja vænt um að eilífu."




