Gunnar Már tekinn við Þrótti Vogum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Már Guðmundsson er tekinn við starfi aðalþjálfara Þróttar Vogum eftir að Brynjar Þór Gestsson yfirgaf félagið á dögunum.
Gunnar Már gerir tveggja ára samning við Þrótt en hann var síðast aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni 2016 og 2017.
Eftir það tók hann við starfi sem yfirþjálfari yngriflokka hjá Fjölni, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla þar til hann lét af störfum haustið 2021.
Hann spilaði fyrir Fjölni, FH, ÍBV og Þór í efstu deild karla á tíma sínum sem leikmaður og lék einn A-landsleik, auk fimm bikarúrslitaleikja. Á tíma sínum hjá Fjölni afrekaði Gunnar það að spila í fjórum efstu deildum íslenska boltans.
Gunnar er með UEFA A þjálfaragráðu auk þess að vera lærður nuddari og íþróttafræðingur með meistaragráðu í stjórnun.
„Við hvetjum alla sanna Þróttara til að taka vel á móti Gunnari og hans fólki. Gunnar hóf störf í vikunni og fyrsti æfingaleikurinn verður á móti Aftureldingu og fer fram í nóvember. Hvetjum við alla Þróttara til að fjölmenna á leikinn," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Þrótti, sem endaði í fjórða sæti 2. deildar í ár.
Vogamenn voru aðeins fjórum stigum frá sæti í Lengjudeildinni eftir tapleiki í síðustu tveimur umferðum tímabilsins.