Fotbolti.net
05.10.23 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Mark Hughes rekinn frá Bradford (Staðfest)

Mark Hughes rekinn frá Bradford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Velski stjórinn Mark Hughes var í gær rekinn frá enska D-deildarliðinu Bradford City.
Hughes tók við Bradford á síðasta ári eftir fjögurra ára hlé frá þjálfun, en það var í fyrsta sinn á ferlinum sem hann var að stýra liði utan ensku úrvalsdeildarinnar.

Ævintýrið byrjaði vel og var hann valinn besti stjóri mánaðarins í september á síðasta ári er liðið vann fjóra leiki í röð.

Það komst í umspil um sæti í ensku C-deildina en datt út í undanúrslitum.

Liðið hefur gengið í gegnum mikinn öldudal í byrjun leiktíðar og er í 18. sæti og ákvað Bradford að gera breytingar og reka Hughes, en frá þessu var greint í gær.

Hughes stýrði áður Blackburn Rovers, Fulham, Manchester City, Southampton, Stoke og QPR í ensku úrvalsdeildinni ásamt því að þjálfa velska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.