Birmingham rekur Eustace (Staðfest) - Rooney að taka við

Wayne Rooney.

Mynd: EPA

Wayne Rooney.

Mynd: EPA
Birmingham hefur tekið ákvörðun um að reka þjálfarann John Eustace úr starfi þrátt fyrir flottan byrjun á tímabilinu.
Birmingham er sem stendur í sjötta sæti Championship-deildarinnar en ef deildin myndi enda í dag, þá myndi það nægja í umspil fyrir sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Eigendur Birmingham eru sagðir vilja vera með stærra nafn í brúnni.
Enskir fjölmiðlar hafa fullyrt að Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United og fyrrum fyrirliði enska landsliðsins, sé að taka við.
Rooney sagði upp starfi sínu hjá D.C. United í Bandaríkjunum um liðna helgi en hann hefur ekki náð að koma liðinu í úrslitakeppni MLS deildarinnar í tveimur tilraunum.