Fotbolti.net
06.10.23 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Branthwaite skrifaði undir nýjan samning við Everton (Staðfest)

Jarrad Branthwaite.

Jarrad Branthwaite.

Canon

Mynd: Getty Images

Jarrad Branthwaite miðvörður Everton hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til sumarsins 2027.

Branthwaite er 21 árs og kom á Goodison Park fræa Carlisle í janúar 2020. Hann lék á láni hjá Blackburn og PSV Eindhoven áður en hann festi sig í sessi hjá Everton á þessu tímabili.

Branthwaite var orðaður við Manchester United en ákvað að skrifa undir nýjan samning. Hann var hluti af enska U21 landsliðinu sem vann EM í sumar.
„Mér finnst ég vera hluti af fjölskyldu hjá Everton og ég elska að spila fyrir framan stuðningsmennina. Það eru lykilatriði í því að ég framlengi," segir Branthwaite.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Everton þegar hann var 18 ára gamall og hefur hann alls leikið sautján leiki fyrir félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.