Binni Gests hættur hjá Þrótti Vogum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Þór Gestsson er hættur hjá Þrótti Vogum eftir að hafa stýrt félaginu síðustu tvö tímabil, en hóf fyrst störf hjá félaginu árið 2017 þegar Þróttarar voru í 3. deild. Hann hefur síðan þá hætt og verið ráðinn aftur í tvígang - fyrst 2020 og svo 2022.
Binni Gests hefur verið gríðarlega mikilvægur í uppbyggingu fótboltastarfs í Vogum síðustu ár og skilur við Þrótt í efri hluta 2. deildar, þar sem liðið var aðeins hársbreidd frá því að tryggja sér sæti aftur í Lengjudeildinni.
Binni var ráðinn í fyrrasumar og rann samningur hans út núna í haust, en ekki er útilokað að hann verði ráðinn aftur til félagsins í framtíðinni.
„Brynjar á risastóran þátt í því að knattspyrnan hefur komist á þann stað sem hún er á í dag hjá félaginu. Þó leiðir skilja í bili þá verður Þróttur Vogum alltaf í sambandi við Binna. Binni, bestu þakkir fyrir vel unnin störf," segir meðal annars í tilkynningu frá Þrótti V.