Bræðurnir hættir með KFG (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn og Kristján Mássynir eru hættir með KFG, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Bræðurnir tóku við KFG þegar liðið spilaði í 4. deild en þeir stýrðu liðinu í sjö tímabil og komust tvisvar upp í 2. deild á tíma þeirra þar.
Liðið var í toppbaráttu stærstan hluta tímabils en missti dampinn í síðustu umferðunum er liðið tapaði fimm leikjum af sex og hafnaði því í 8. sæti með 30 stig.
Þeir stýrðu KFG í úrslit Fótbolta.net bikarsins þar sem liðið beið lægri hlut fyrir Víði, 2-1, á Laugardalsvelli.
Bræðurnir eru nú hættir þjálfun liðsins, en verða þó áfram í kringum félagið og munu aðstoða stjorn félagsins á næsta tímabili.