Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   sun 08. október 2023 16:15
Aksentije Milisic
Óskar Hrafn hættur með Breiðablik (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson er hættur með Breiðablik en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Óskar stýrði liðinu í fjögur tímabil og vann hann Íslandsmeistaratitilinn í fyrra eftir að hafa verið grátlega nálægt því tímabilið áður.


Samkvæmt yfirlýsingu frá knattspyrnudeild Breiðabliks þá vildi Óskar klára riðlakeppni Sambandsdeildarinnar með liðinu og hætta þá um miðjan desember. Stjórn Breiðabliks samþykkti það ekki og vildi að hann myndi láta af störfum strax.

Breiðablik tapaði gegn Stjörnunni í dag og liðið endar því í fjórða sæti Bestu deildarinnar á þessu tímabili. Þá hefur Breiðablik tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar með minnsta mun. Framundan er leikur gegn belgíska liðinu Gent á útivelli þann 26. október næstkomandi.

Óskar er á leið til Noregs á morgun og mun þar ræða við ráðamenn hjá norska félaginu Haugasundi. Hann hefur þá verið orðaður við þjálfarastarfið hjá KR.

Yfirlýsing frá knattspyrnudeild Breiðabliks:

Á mánudaginn síðasta óskaði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki, eftir að láta af störfum um miðjan desember nk.

Eftir vandlega íhugun var það mat forsvarsmanna félagsins að hreinlegast væri að ganga frá þessum breytingum strax og lætur því Óskar Hrafn af störfum í dag.

Óskar Hrafn kom til Breiðabliks 2019 og hefur á sínum tíma náð frábærum árangri með liðið. Ber þar hæst Íslandsmeistaratitilinn 2022 og það að koma Breiðabliki í riðlakeppni í Evrópu fyrst íslenskra karlaliða.

Undir stjórn Óskars hefur liðið spilað 24 Evrópuleiki og með árangri sínum átt mestan þátt í því að tryggja íslenskum félagsliðum 4 Evrópusæti. Það hefur verið afar gaman fyrir stuðningsmenn Breiðabliks og aðra knattspyrnuáhugamenn að fylgjast með spilamennskunni, innanlands og utan, undir stjórn Óskars Hrafns

Með metnaði sínum og eldmóði hefur hann hvatt félagið til að gera enn betur í aðstöðu og aðbúnaði öllum og um leið hjálpað leikmönnum að nýta sína hæfileika og taka næstu skref hvort það er innan raða Breiðabliks eða á erlendri grundu.

Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Óskari Hrafni kærlega fyrir samstarfið og samvinnuna, honum fylgja okkar bestu kveðjur og óskir úr Smáranum um gott gengi í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur á komandi misserum og árum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner