Fotbolti.net
05.10.23 - 12:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Patrick Pedersen framlengir við Val (Staðfest)

Patrick Pedersen framlengir við Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tilkynnti í dag að félagið hefði framlengt samning sinn við Patrick Pedersen um tvö ár. Samningur danska framherjans var að renna út núna í haust. Hann verður 32 ára í nóvember.

„Patrick sem kom fyrst að láni frá danska félaginu Vendsyssel FF 2013 til Vals sló strax í gegn á Hlíðarenda og skömmu síðar var gengið frá endanlegum félagsskiptum," segir í tilkynningu Vals.
Patrick var keyptur til Viking í Noregi en Valur fékk hann til baka. Hann var svo keyptur til Sheriff í Moldavíu, það stopp reyndist stutt og sneri Patrick aftur á Hlíðarenda „enda einn vinælasti leikmaður félagsins frá upphafi."

„Patrick Pedersen er líklega besti erlendi leikmaðurinn sem leikið hefur í efstu deild hér á landi og sá markahæsti í sögunni og er í sjötta sæti yfir þá markahæstu allra tíma í efstu deild."

Hann á 224 leiki með Val og hefur skorað í þeim 139 mörk þar af eru 99 mörk í efstu deild í 161 leik.

„VI HAR PEDERSEN! VI HAR PEDERSEN! Mun hljóma á Hlíðarenda næstu tímabil," segir einnig í tilkynningunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.