Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25159 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR23.11.2023, 15:15

Arnór Borg skiptir alfarið í FH (Staðfest)

Arnór Borg Guðjohnsen er genginn í raðir FH frá Víkingi. Þetta tilkynnti FH á samfélagsmiðlum sínum í dag. Sóknarmaðurinn lék á láni með FH seinni hluta tímabilsins á láni frá Víkingi en skiptir nú alfarið yfir. Hann átti ár eftir af samningi sínum við Víking.

FRÉTTIR23.11.2023, 12:15

Grótta krækir í Valdimar Daða og norskan varnarmann (Staðfest)

Grótta tilkynnti í dag að tveir leikmenn væru að ganga í raðir félagsins. Það eru þeir Valdimar Daði Sævarsson og Eirik Brennhaugen. Valdimar kemur frá Þór og Norðmaðurinn Eirik kemur frá Stjördals-Blink sem var í þriðju efstu deild í Noregi á liðinni leiktíð. Báðir skrifa þeir undir tveggja ára samninga við Gróttu. Valdimar, sem er 21 árs, er kantmaður sem lék með KV áður en hann hélt norður fyrir síðasta sumar. Hann getur einnig leyst fleiri stöður fram á við. Hann á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði þrjú mörk í þrettán deildarleikjum fyrir Þór á liðinni leiktíð.

FRÉTTIR22.11.2023, 18:10

Alex Þór á förum frá Öster (Staðfest)

Alex Þór Hauksson verður ekki áfram hjá Öster. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Tímabilinu í Svíþjóð er lokið fyrir utan umspilið um sæti í efstu deild sem Öster missti af í lokaumferðinni. Í Svíþjóð er hins vegar hefð fyrir því að æfa í smá tíma eftir að mótinu lýkur. Alex var í stóru hlutverki seinni hluta tímabilsins 2021, í lykilhlutverki á tímabilinu í fyrra en lék ekki jafnmikið á liðinni leiktíð; byrjaði 14 leiki af 30 og kom níu sinnum inn á sem varamaður.

FRÉTTIR22.11.2023, 16:30

Gylfi Tryggva aðstoðar Guðna hjá HK (Staðfest)

Gyfli Tryggvason, sem hefur stýrt liði Árbæjar undanfarin ár, er kominn með nýtt starf. Greint var frá því á dögunum að hann yrði ekki áfram með Árbæ og í dag var tilkynnt að hann væri nýr aðstoðarþrjálfari hjá HK. Hann mun aðstoða Guðna Þór Einarsson með þjálfun meistaraflokks kvenna. Gylfi skrifar undir tveggja ára samning við HK.

FRÉTTIR22.11.2023, 15:34

Guðni Bergs býður sig fram til formanns KSÍ (Staðfest)

Guðni Bergsson, fyrrum formaður KSÍ, hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formaður. Nýr formaður verður kjörinn á ársþingi sambandsins í febrúar næstkomandi. Hann var formaður sambandsins á árunum 2017-2021. Hann sagði af sér sem formaður í ágúst 2021 í kjölfar frétta af meintri hylmingu sambandsins yfir kynferðisbrotum landsliðsmanna. Sitjandi formaður, Vanda Sigurgeirsdóttir, hefur tilkynnt að hún ætli ekki að gefa kost á sér áfram.

FRÉTTIR22.11.2023, 14:30

Selma Sól yfirgefur Rosenborg (Staðfest) - Tilboð frá Englandi

Fjallað er um það á norska miðlunum <i>adressa.no</I> að Selma Sól Magnúsdóttir sé á förum frá Rosenborg. Samningur hennar við norska félagið er að renna út og verður ekki skrifað undir nýjan samning. Þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.

FRÉTTIR22.11.2023, 13:52

Emelía nýtti sér ákvæði og yfirgefur Kristianstad (Staðfest)

Kristianstad tilkynnti í dag að sex leikmenn yrðu ekki lengur hjá félaginu. Á meðal þeirra er Emelía Óskarsdóttir. Hún skrifaði undir þriggja ára samning við félagið þegar hún gekk í raðir þess en nýtti sér uppsagnarákvæði í samningnum og er því laus allra mála. Hún var með ákvæði í samningi sínum sem fól það í sér að ef Elísabet Gunnarsdóttir myndi yfirgefa félagið þá gæti Emelía sagt upp samningi sínum við félagið. Elísabet yfirgaf félagið á dögunum eftir fimmtán ára veru. Hún gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið 2022 og kom við sögu í 24 leikjum í sænsku deildinni á tíma sínum hjá Kristianstad. Fyrri hluta tímabilsins 2023 lék hún á láni með Selfossi.

FRÉTTIR22.11.2023, 13:00

Eyrún Vala í Fram (Staðfest)

Fram tilkynnti í dag að Eyrún Vala Harðardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Hún kemur frá Stjörnunni en hún lék á láni með HK seinni hluta tímabilsins 2023. Eyrún er uppalin í Breiðabliki og lék sitt fyrsta tímabil í meistaraflokki með Augnabliki sumarið 2019.

FRÉTTIR22.11.2023, 09:28

Kjartan Kári gerði þriggja ára samning við FH (Staðfest)

Kjartan Kári Halldórsson hefur gert þriggja ára samning við FH sem kaupir hann frá norska félaginu Haugesund. Kjartan var á láni hjá þeim allt síðasta tímabil. Óskar Hrafn Þorvaldsson tók nýlega við þjálfun Haugesund. Kjartan er tvítugur vængmaður sem lék 24 leiki í deild og bikar með FH á liðnu tímabili. Í þeim skoraði hann þrjú mörk og lagði upp tvö. Kjartan var keyptur til Haugesund frá Gróttu eftir frábært tímabil 2022.

FRÉTTIR21.11.2023, 18:32

Fyrirliði Keflavíkur leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Varnarmaðurinn Magnús Þór Magnússon hefur lagt skóna á hilluna. Frá þessu var greint í hlaðvarpsþættinum <i>Gula Spjaldið</I> á föstudag og staðfesti Magnús tíðindin í samtali við Fótbolta.net í dag. Magnús er 31 árs og hefur borið fyrirliðabandið undanfarin ár.

FRÉTTIR21.11.2023, 11:22

Unnar Ari í KFK (Staðfest)

Miðjumaðurinn Unnar Ari Hansson hefur fengið félagaskipti frá KFA til KFK. Unnar var fyrirliði KFA í sumar sem rétt missti af sæti í Lengjudeildinni. Hann er 25 ára og uppalinn í Fjarðabyggð/Leikni. Hann lék með Þrótti Vogum tímabilin 2021 og 2022.

FRÉTTIR20.11.2023, 22:08

Ísland fer í umspilið (Staðfest)

Íslenska karlalandsliðið mun taka þátt í umspili um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi, en þetta varð ljóst eftir 3-0 sigur Tékklands á Moldóvu í kvöld.

FRÉTTIR20.11.2023, 16:07

Kennie Chopart í Fram (Staðfest)

Fram heldur áfram að styrkja liðið sitt fyrir komandi átök í Bestu deildinni. Rétt í þessu var greint frá því að Kennie Chopart væri genginn í raðir félagsins. Danski hægri bakvörðurinn skrifar undir eins árs samning við félagið en hann kemur frá KR. Hann lék undir stjórn Rúnars Kristinssonar hjá KR og fylgir honum í Fram, en Rúnar tók við stjórnartaumunum þar í haust.

FRÉTTIR20.11.2023, 15:35

Edda Garðars fylgir Nik til Breiðabliks (Staðfest)

Edda Garðarsdótir var í dag tilkynnt sem nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum Breiðabliks. Edda er fyrrum landsliðskona sem aðstoðaði Nik Chamberlain síðustu ár hjá Þrótti. Nik söðlaði um og samdi við Breiðablik í haust og Edda fylgir honum yfir í Kópavoginn.

FRÉTTIR20.11.2023, 14:30

Vildi ekki tjá sig um Facebook-færsluna - Er í viðræðum við nýtt félag

Vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson hló að frétt þar sem fjallað var um ástæðuna fyrir því að hann verður ekki áfram hjá KR. Kristinn lék í sex tímabil með KR en kvaddi félagið fyrr í þessum mánuði með færslu á samfélagsmiðlum. Gregg Ryder, nýr þjálfari KR, segist hafa rætt við Kidda um mögulegt áframhald en Kiddi hafi ekki getað haldið áfram í KR þar sem æfingatímarnir hentuðu honum ekki. Gregg vill æfa í hádeginu, það kom fram í hlaðvarpsþættinum <i>Dr. Football</I>. Kiddi deildi frétt um málið á Facebook síðu sinni og setti tvo hláturkalla við færsluna sem er opin öllum. Það er hægt að lesa ýmislegt út úr því. Fótbolti.net hafði samband við Kidda í dag en hann vildi ekki tjá sig um færsluna.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.