Ainsworth rekinn frá QPR (Staðfest) - Warnock líklegastur til að taka við
Gareth Ainsworth hefur verið látinn taka poka sinn hjá QPR, en liðið er án sigurs í síðustu níu leikjum.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25163 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Gareth Ainsworth hefur verið látinn taka poka sinn hjá QPR, en liðið er án sigurs í síðustu níu leikjum.
<i>„Þetta eru stór skipti fyrir mig og bæði heiður og forréttindi að fá þetta starf. Ég er mjög stoltur því þetta er frábært tækifæri, ég hlakka mikið til þessa,"</i> sagið Gregg Ryder við Fótbolta.net í dag eftir að hann hafði skrifað undir samning um að þjálfa lið KR komandi ár.
KR tilkynnti rétt í þessu að Gregg Ryder hafi verið ráðinn þjálfari liðsins. Þetta var tilkynnt á fjölmennum fréttamannafundi í félagsheimili KR í vesturbænum. <i>„Það hafa margir verið í umræðunni en við höfum flýtt okkur hægt,"</i> sagði Páll Kristjánsson formaður KR á fundinum í dag og ítrekaði að þegar ráðið sé hjá KR þurfi að vanda til verka en ekki flýta sér.
Aron Snær Ingason er búinn að framlengja samning sinn við Fram til 2025 eftir að hafa átt frábært tímabil á láni hjá Þrótti R. í Lengjudeildinni.
Miðjumaðurinn Aron Einarsson hefur yfirgefið Selfoss og gengið í raðir Leiknis í Breiðholti. Miðjumaðurinn knái hefur ritað undir samning við félagið út leiktímabilið 2025.
Leikmannahópur Vestra er að slípast en tveir erlendir leikmenn hafa yfirgefið félagið. Það eru þeir Deniz Yaldir og markvörðurinn Rafael Broetto sem báðir óskuðu eftir því að losna undan samningum.
<i>„Þetta voru kaldar kveðjur,"</i> sagði Þórir Guðjónsson við Fótbolta.net í dag en Framarar tilkynntu á miðvikudagskvöldið að hann væri hættur hjá uppeldisfélaginu sínu.
Nýliðar Vestra í Bestu deildinni hafa samið við danska markvörðinn Andreas Söndergaard.
<p>Sokratis Papastathopoulos fyrrum leikmaður Dortmund og Arsenal hefur skrifað undir samning við Real Betis sem gildir út tímabilið.</p>
<p>Viktor Jónsson hefur framlengt samning sinn við ÍA út tímabilið 2025.</p>
<p>Sigurvin Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar og skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Þróttur hafnaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar á liðnu tímabili.</p>
Jón Gísli Eyland Gíslason hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA sem gildir út leiktíðina 2026. Jón Gísli er 21 árs og á 32 unglingalandsleiki á ferilskrá sinni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað 125 leiki fyrir ÍA og skorað í þeim fjögur mörk.
Bristol Rovers í ensku C-deildinni hefur tekið ákvörðun um að reka stjórann Joey Barton úr starfi. Frá þessu var fyrst sagt frá hjá <i>Talksport</I> en félagið tilkynnti það svo tíðindin formlega stuttu síðar.
Búið er að staðfesta það að ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali sé farinn í tíu mánaða bann frá fótbolta þar sem hann braut veðmálareglur. Tonali gengst við brotum sínum og samdi utan dómstóla.
Framarar staðfestu á Instagram í kvöld að Þórir Guðjónsson sé hættur hjá félaginu.
Fyrirliði Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson, var á fréttamannafundi í Gent spurður út í þjálfarabreytinguna sem átti sér stað í upphafi mánaðar. Halldór Árnason, áður aðstoðarþjálfari liðsins, tók við þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson var látinn fara.
<i>„Þetta er félag sem á mikið inni, leikmannahópur sem er góður. Hér eru margir ungir leikmenn sem væri gaman að vinna með,"</i> sagði Rúnar Kristinsson, nýráðinn þjálfari Fram, við Fótbolta.net í Úlfarsárdalnum í dag. Rúnar sagði að sér hafi fundist strax spennandi tilhugsun að starfa fyrir Fram þegar haft var samband við hann, enda sé Fram félag með mikla sögu.
Rúnar Kristinsson var staðfestur sem nýr þjálfari Fram á fréttamannafundi sem var að hefjast í Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdalnum. Samningurinn er til þriggja ára. Framarar voru í fallbaráttu í Bestu deildinni í sumar en náðu að bjarga sæti sínu í lokaumferðinni þar sem önnur úrslit urðu þeim hagstæð.
Spænski miðjumaðurinn Ion Perello verður ekki áfram í herbúðum Fram. Hann var að renna út á samningi hjá félaginu og mun spila annars staðar á næsta tímabili. Ion gekk í raðir Fram frá Þór í sumar og samdi út tímabilið. Hann er 25 ára gamall og kom við sögu í fjórum leikjum hjá Fram.
Króatíski þjálfarinn Marino Pusic er hættur sem aðstoðarmaður Arne Slot hjá Feyenoord og hefur nú tekið við úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Feyenoord.