Fotbolti.net
27.10.23 - 15:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leiknir fær Aron frá Selfossi (Staðfest)

Samningurinn handsalaður.

Samningurinn handsalaður.

Canon

Mynd: Leiknir R.

Lengjudeildin
Miðjumaðurinn Aron Einarsson hefur yfirgefið Selfoss og gengið í raðir Leiknis í Breiðholti.

Miðjumaðurinn knái hefur ritað undir samning við félagið út leiktímabilið 2025.
Aron er 21 árs leikmaður sem vakti athygli í Lengjudeildinni í sumar þrátt fyrir slakt gengi Selfyssinga og þjálfarateymi Leiknis er spennt fyrir því að fá hann til félagsins.

„Það eru góð tíðindi fyrir Leikni að Aron Einarsson gangi til liðs við félagið. Hann er vinnusamur leikmaður sem fellur vel inn í hugmyndafræði liðsins. Hann er leikmaður sem við tókum eftir á nýliðnu keppnistímabili og vakti áhuga okkar. Við erum því mjög ánægðir með það að hann er tilbúinn að taka slaginn með okkur," sagði Vigfús Arnar Jósefsson, þjálfari Leiknis, af þessu tilefni.

„Við bjóðum Aron Einarsson velkominn í Leiknisfjölskylduna og tökum öll sem eitt vel á móti kappanum á nýjan heimavelli hans," segir í tilkynningu Leiknis sem endaði í fimmta sæti Lengjudeildarinnar síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.