Jón Gísli Eyland framlengir við ÍA út 2026 (Staðfest)

Jón Gísli í leik með ÍA.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Jón Gísli í leik með ÍA.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Jón Gísli Eyland Gíslason hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA sem gildir út leiktíðina 2026.
Jón Gísli er 21 árs og á 32 unglingalandsleiki á ferilskrá sinni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað 125 leiki fyrir ÍA og skorað í þeim fjögur mörk.
Jón Gísli er 21 árs og á 32 unglingalandsleiki á ferilskrá sinni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað 125 leiki fyrir ÍA og skorað í þeim fjögur mörk.
Hann kom á Skagann árið 2019 frá Tindastóli en þar sló hann í gegn mjög ungur að árum og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fjórtán ára gamall. Jón á einnig 32 unglingalandsleiki að baki.
„Þessi fjölhæfi leikmaður stóð sig virkilega vel á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði megnið af tímabilinu í hægri bakverði ásamt því spila inn á miðjunni," segir í tilkynningu ÍA.
ÍA hafnaði í efsta sæti Lengjudeildarinnar í sumar og komst þar með beint upp í Bestu deildina.

Jón Gísli Eyland Gíslason hefur skrifað undir samning við ÍA sem að gildir út leiktíðina 2026 ????
— ÍA Akranes FC (@Skagamenn) October 26, 2023
Jón Gísli (2002) hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 125 leiki fyrir ÍA og skorað í þeim 4 mörk síðan hann kom á Skagann árið 2019 frá Tindastól. En þar sló hann í gegn mjög ungur… pic.twitter.com/1nhPyZzOqK