Aron Snær framlengir við Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Snær Ingason er búinn að framlengja samning sinn við Fram til 2025 eftir að hafa átt frábært tímabil á láni hjá Þrótti R. í Lengjudeildinni.
Aron Snær stóð sig svo vel í Laugardalnum að Ragnar Sigurðsson þjálfari fékk hann til baka úr láninu til að hjálpa Fram í fallbaráttu Bestu deildarinnar.
Hann kom inn í efstu deild af krafti og skoraði tvö mörk í tíu leikjum til að hjálpa Fram að forðast fall, eftir að hafa gert 8 mörk í 15 Lengjudeildarleikjum.
„Aron Snær er uppalinn Framari og hlökkum við mikið til að fylgjast áfram með honum gera garðinn frægan í bláu treyjunni," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram.
Aron er fæddur 2001 og er knár sóknarleikmaður, sem getur leikið úti á kanti eða sem framherji.