Viktor Jónsson framlengir við ÍA (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Jónsson hefur framlengt samning sinn við ÍA út tímabilið 2025.
Viktor var stórkostlegur á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni með sigri í Lengjudeildinni.
Hann var markakóngur deildarinnar, hann skoraði 20 mörk í 22 leikjum og var einnig valinn besti leikmaður deildarinnar.
Hann hefur leikið 132 leiki fyrir ÍA og skorað 60 mörk síðan hann gekk til liðs við félagið árið 2019 frá Þrótti.
Hann er annar leikmaðurinn sem framlengdi við ÍA í dag en félagið tilkynnti að Jón Gísli Eyland Gíslason hafi skrifað undir nýjan samning við félagið fyrr í dag.

Jón Gísli Eyland framlengir við ÍA út 2026 (Staðfest)
Viktor Jónsson hefur framlengt samning sinn við félagið út leiktíðina 2025 ????
— ÍA Akranes FC (@Skagamenn) October 26, 2023
Viktor er öflugur sóknarmaður sem hefur spilað 132 leiki fyrir ÍA og skorað 60 mörk síðan hann kom til liðsins árið 2019 ?
Viktor var valinn leikmaður ársins á lokahófi ÍA, varð markakóngur… pic.twitter.com/XtwgGsA6Iy



