Fotbolti.net
26.10.23 - 17:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sigurvin tekinn við Þrótti (Staðfest)

Sigurvin tekinn við Þrótti (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur

Lengjudeildin

Sigurvin Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar og skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Þróttur hafnaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar á liðnu tímabili.

Sigurvin þjálfaði KV frá 2018-2021 og kom liðinu úr 3. deild upp í Lengjudeildina. Hann var síðan aðstoðarþjálfari hjá KR og nú síðast aðstoðarþjálfari FH.

„Þróttarar hafa verið að gera spennandi hluti undanfarin ár og áherslur félagsins eru áhugaverðar. Það er verðugt verkefni fyrir mig að þjálfa unga leikmenn með það fyrir augum að þeir myndi kjarnann í liði sem ætlað er að ná árangri til lengri tíma. Ég hlakka til að takast á við starfið og að vinna með Þrótturum að sameiginlegum markmiðum," sagði Sigurvin við undirskriftina.

„Það er óhætt að fagna ráðningu Sigurvins til Þróttar. Hann er mjög metnaðarfullur og hugmyndir hans og félagsins fara mjög vel saman. Stærsta verkefni nýs þjálfara er að þjálfa ungan og efnilegan leikmannahóp uppaldra leikmanna og bæta leik liðsins frá ári til árs. Það er stefna Þróttar að byggja upp lið með þessum hætti og við erum þess fullviss að Sigurvin sé rétti maðurinn til að leiða lið meistaraflokks karla í Þrótti áfram á þessari braut.“ sagði Kristján Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar Þróttar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.