Ainsworth rekinn frá QPR (Staðfest) - Warnock líklegastur til að taka við

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gareth Ainsworth hefur verið látinn taka poka sinn hjá QPR, en liðið er án sigurs í síðustu níu leikjum.
QPR, sem spilar í B-deildinni, tapaði fyrir toppliði Leicester, 2-1, á Loftus Road.
Liðið var að tapa sjötta leiknum í röð og því var ekkert annað í stöðunni en að víkja Ainsworth úr starfi.
Samkvæmt Sky Sports er Neil Warnock liklegastur til að taka við liðinu út tímabilið.
Warnock stýrði síðast Huddersfield Town, en hann var fenginn inn í febrúar þegar liðið var sjö stigum frá öruggu sæti. Englendingnum tókst að bjarga liðinu frá falli, en hætti með liðið í síðasta mánuði.
Þessi ágæti stjóri þekkir ágætlega til hjá QPR en hann stýrði liðinu upp í ensku úrvalsdeildina árið 2011. Það gekk ekki nógu vel í deild þeirra bestu og var hann látinn fara á miðju tímabili, en hann sneri aftur til QPR árið 2015, þá sem bráðabirgðastjóri.