Rúnar Kristins: Maður vill vera meðal þeirra bestu

Rúnar Kristinsson á fréttamannafundinum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er félag sem á mikið inni, leikmannahópur sem er góður. Hér eru margir ungir leikmenn sem væri gaman að vinna með," sagði Rúnar Kristinsson, nýráðinn þjálfari Fram, við Fótbolta.net í Úlfarsárdalnum í dag.
Rúnar sagði að sér hafi fundist strax spennandi tilhugsun að starfa fyrir Fram þegar haft var samband við hann, enda sé Fram félag með mikla sögu.

„Það voru einhver fimm til sex félög sem hringdu fyrir tveimur vikum og ég gaf þeim viku til að hugsa, bað þau um að hringja aftur. Fram var mjög spennandi frá upphafi og í raun fór ég bara í viðræður við tvö félög. Fram var efst á blaði þar sem þeir eru í efstu deild. Hitt félagið sem ég ræddi við er ekki í efstu deild," segir Rúnar.
„Ég vil vera meðal þeirra bestu, ég vil prófa eitthvað nýtt hér og sjá hvernig er að starfa í öðru félagi en ég hef verið í. Þetta er smá áskorun fyrir sjálfan, sjá hvað maður getur gert við mismunandi aðstæður og við mismunandi leikmannahópa."

Getum barist um að vera í topp sex
Rúnar segist ekki vera með nein loforð um fjármuni til leikmannakaupa, það sé eitthvað sem hafi ekki átt þátt í þeirri ákvörðun að taka við Fram. Markmið liðsins séu raunhæf.
„Við höfum rætt markmiðin, hvert við viljum stefna. Ef einhver ætlar að segja mér að gera Fram að Íslandsmeistara næsta haust þarf ég að fá haug af peningum og geta fengið bestu leikmennina. Við sjáum hvað við erum með og hvert við getum stefnt þegar komið er fram í janúar eða febrúar. Þá sjáum við liðið og hvar við hugsanlega stöndum gagnvart bestu liðunum," segir Rúnar.
„Smátt og smátt þurfum við að taka lítil skref í einu. Það er alls ekki gott að sprengja bankann eða taka of stór skref í einu, lenda í skuldasúpu og svo ertu fallinn með liðið eftir tvö ár. Það þarf að byggja þetta hægt og bítandi, styrkja stöðu Fram í efstu deild og reyna að setja markmið sem eru skýr og raunhæf. Ég tel að við getum barist um það í dag að vera í topp sex, það þýðir að við séum enn í baráttu um það þegar tvær til þrjár umferðir eru eftir af mótinu."
Í spilaranum hér að neðan og í hlaðvarpsveitum er hægt að hlusta á viðtalið við Rúnar í heild sinni

TENGT EFNI
Rúnar Kristins nýr þjálfari Fram (Staðfest)