Fotbolti.net
27.10.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Sokratis Papastathopoulos til Real Betis (Staðfest)

Sokratis Papastathopoulos til Real Betis (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sokratis Papastathopoulos fyrrum leikmaður Dortmund og Arsenal hefur skrifað undir samning við Real Betis sem gildir út tímabilið.

Sokratis gekk til liðs við Olympiakos í janúar 2021 eftir að hafa verið hjá Arsenal en hann lék 94 leiki með gríska liðinu. Hann yfirgaf liðið í sumar og hefur nú fundið sér nýtt félag.

Hann varð tvisvar sinnum grískur meistari með Olympiakos.

Real Betis er í 9. sæti spænsku deildarinnar en liðið fær Osasuna í heimsókn á sunnudaginn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.