Marco Silva áfram hjá Fulham (Staðfest)
Portúgalski stjórinn Marco Silva hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25163 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Portúgalski stjórinn Marco Silva hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham.
Ólafur Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Þróttara. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag. Hann tekur við starfinu af Nik Chamberlain sem var á dögunum ráðinn sem nýr þjálfari Breiðabliks. <b>Uppfært 17:05:</b> Áður var sagt frá yfirvofandi ráðningu Þróttar og staðfesti félagið í kjölfarið tíðindin.
Sandgerðingar tilkynntu í dag að þeir Kristófer Páll Viðarsson og Benedikt Jónsson verða áfram hjá liðinu. Þeir hafa báðir skrifað undir samning sem gilda út tímabilið 2025. Benedikt er fæddur árið 1997. <i>„Varnarjaxlinn Benni hefur leikið með félaginu frá árinu 2020 og á að baki 87 leiki fyrir Reyni. Hann bar fyrirliðabandið í sumar og leiddi liðið glæsilega til sigurs í 3. deild karla,"</I> segir í tilkynningu Reynis.
Fram hefur gengið frá samningum við Frey Sigurðsson, en hann kemur til félagsins frá Sindra.
Nacho Gil og Vladimir Tufegdzic hafa báðir framlengt samninga sína við Vestra og spila því með liðinu í Bestu deildinni næsta sumar, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Kolbeinn Þórðarson skrifaði á dögunum undir nýjan þriggja ára samning við sænska félagið IFK Gautaborg, en hann og félagið eru í skýjunum með að hafa gengið frá samningnum.
KR er í þjálfaraleit, Ramsdale er sár og þjáður á bekknum hjá Arsenal og sænskir stuðningsmenn voru skotnir til bana í Brussel. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Stuðningsmenn Ajax hafa tekið þeim fregnum sem voru að berast fagnandi en búið er að reka þjálfarann Maurice Steijn úr starfi.
Selfoss hefur tilkynnt að félagið hafi komist að samkomulagi við Fylki um sölu á Guðmundi Tyrfingssyni. Hann semur við Árbæjarliðið út tímabilið 2026.
Færeyski sóknarmaðurinn Martin Klein hefur skrifað undir samning við Lengjudeildarfélag Njarðvíkur sem gildir til næstu tveggja ára.
Ítalska B-deildarfélagið Sampdoria er búið að festa kaup á kantmanninum efnilega Estanislau Pedrola frá Barcelona, sem félagið fékk á láni með kaupskyldu sem virkjast eftir tíu spilaða leiki.
City Football Group samdi við brasilíska kantmanninn Sávio, einnig þekktur sem Savinho, í fyrra og keypti hann frá Atletico Mineiro til Troyes í Frakklandi.
Miðjumaðurinn Kolbeinn Þórðarson skipti frá Lommel SK yfir til Göteborg í ágúst og fór beint inn í byrjunarliðið hjá sænska félaginu. Hann hefur staðið sig gríðarlega vel og er strax búinn að gera nýjan samning við félagið.
<p>Bjarni Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 2. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.</p><p>Hann tekur við af Dean Martin sem lét af störfum í síðasta mánuði.</p>
FH er búið að klófesta serbneska varnarmanninn Dusan Brkovic sem kemur til félagsins úr röðum KA.
Ægir í Þorlákhsöfn er búið að staðfesta nýjan samning við lykilmann sinn og fyrirliða Stefan Dabetic, sem gildir næstu tvö keppnistímabilin.
Gary O'Neil, knattspyrnustjóri Wolves, snýr aftur til Bournemouth á morgun í fyrsta sinn eftir að félagið rak hann úr starfi í sumar.
Andri Rúnar Bjarnason er genginn til liðs við Vestra, sem er nýliði í Bestu deildinni. Þetta staðfestu Ísfirðingar með færslu á samfélagsmiðlum fyrir skömmu.
Hans Viktor Guðmundsson skrifaði í dag undir samning við KA út keppnistímabilið 2025. Hans Viktor er 27 ára miðvörður sem gengur til liðs við Akureyrarliðið frá Fjölni þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Hann rifti samningi sínum við Fjölni nýlega og hefur verið í viðræðum við einhver lið.
KFG hefur samið við Veigar Pál um að taka við þjálfun liðsins til tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Veigar lætur af störfum sem þjálfari 2. flokks Stjörnunnar en hann gerði liðið að Íslandsmeisturum í ár.