O'Neil: Þessi leikur snýst 0% um mig

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gary O'Neil, knattspyrnustjóri Wolves, snýr aftur til Bournemouth á morgun í fyrsta sinn eftir að félagið rak hann úr starfi í sumar.
Það kom mörgum í opna skjöldu að félagið hafi ákveðið að reka O'Neil eftir að honum tókst að bjarga Bournemouth frá falli úr ensku úrvalsdeildinni, en O'Neil segir að leikurinn á morgun snúist ekki um sig.

„Þetta snýst 0% um mig, þetta er leikur eins og hver annar þar sem við viljum taka þrjú stig með okkur heim. Það er ekkert annað í þessu fyrir mig," sagði O'Neil, sem var svo spurður hvort honum hafi þótt brottreksturinn frá Bournemouth í sumar vera réttlátur. „Það er ekki mitt hlutverk að meta það."
Wolves er komið með átta stig eftir átta fyrstu umferðirnar á nýju úrvalsdeildartímabili á meðan Bournemouth situr í næstneðsta sæti með þrjú stig. Andoni Iraola, sem tók við af O'Neil í sumar, tjáði sig stuttlega um forvera sinn.
„Ég held að það séu allir sammála um að hann (Gary O'Neil) hafi gert góða hluti hjá þessu félagi. Hann gerði góða hluti á síðustu leiktíð og ég er viss um að þetta verði sérstakur dagur fyrir hann þegar hann hittir allt fyrrum samstarfsfólkið sitt fyrir og eftir leikinn," sagði Iraola.
„Ég er viss um að hann verði einbeittur að leiknum í 90 mínútur en þegar kemur að ákveðnum smáatriðum, eins og föstum leikatriðum, þá hjálpar það okkur að eiga starfsfólk hérna sem þekkir hann vel."

TENGT EFNI
Gary O'Neil óvænt rekinn frá Bournemouth (Staðfest)