Fotbolti.net
23.10.23 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

„Ef ég geri vel hér þá mun Manchester City vilja kaupa mig"

„Ef ég geri vel hér þá mun Manchester City vilja kaupa mig"
Canon

Mynd: EPA

City Football Group samdi við brasilíska kantmanninn Sávio, einnig þekktur sem Savinho, í fyrra og keypti hann frá Atletico Mineiro til Troyes í Frakklandi.
Man City lét Troyes kaupa Savinho fyrir sig (Staðfest)
TENGT EFNI

Man City lét Troyes kaupa Savinho fyrir sig (Staðfest)



Sávio var sendur beint út á lán til PSV Eindhoven en var ekki tilbúinn fyrir hollenska boltann. Hann fékk þó að spreyta sig í nokkrum leikjum með aðalliðinu og var nógu góður með varaliðinu til að hrífa þjálfarateymi félagsins, sem vildi fá hann lánaðan aftur í sumar. AS Roma bauðst einnig til að taka hann á láni en eftir langa ígrundun tóku stjórnendur City Football Group, í samráði við leikmanninn, að senda hann frekar til Girona í spænska boltanum.

Hjá Girona hefur þessi efnilegi vinstri kantmaður byrjað af krafti og er kominn með tvö mörk og fjórar stoðsendingar í níu fyrstu deildarleikjum tímabilsins. Ungstirnið er að eiga þátt frábærri byrjun Girona á deildartímabilinu þar sem liðið deilir óvænt toppsæti La Liga með Real Madrid. Bæði lið eiga 25 stig eftir 10 umferðir - einu stigi meira en Barcelona.

„Ég er svo hamingjusamur hjá Girona, þetta er fullkominn staður. The City Group er með mjög spennandi verkefni í gangi sem er í heimsklassa að mínu mati. Ef ég geri vel hér þá mun Manchester City vilja kaupa mig," sagði Savinho í viðtali við Marca.

Savio er 19 ára gamall og hefur skorað 5 mörk í 11 leikjum fyrir yngri landslið Brasilíu.
„Ef ég geri vel hér þá mun Manchester City vilja kaupa mig"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.