Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24444 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.08.2023, 22:33

Massengo þrettándi inn hjá Burnley (Staðfest)

<p>Burnley hefur farið mikinn á leikmannamarkaðinum í sumar og var að krækja í Han-Noah Massengo á frjálsri sölu frá Bristol City, en hann er þrettándi leikmaðurinn til að skrifa undir hjá meistaraflokki í sumar.</p>

FRÉTTIR31.08.2023, 21:50

Luton kynnir Teden Mengi (Staðfest)

<p>Luton Town eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og hafa þeir kynnt nýjan leikmann til leiks, varnarmanninn Teden Mengi.</p>

FRÉTTIR31.08.2023, 17:30

Wolves kaupir ungan paragvæskan kantmann (Staðfest)

Það er kominn nýr Enso í úrvalsdeildina. Já Enso, ekki Enzo. Enso Gonzalez var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Wolves. Enso er 18 ára örvfættur kantmaður frá Paragvæ sem Wolves kaupir á fimm milljónir punda frá Libertad. Hann skrifar undir fimm ára samning við enska félagið.

FRÉTTIR31.08.2023, 15:55

Santiago Bueno til Wolves (Staðfest)

Úlfarnir hafa keypt úrúgvæska varnarmanninn Santiago Bueno frá spænska liðinu Girona á 8,5 milljónir punda. Hann er 24 ára og hefur skrifað undir fimm ára samning. Fyrr á þessu ári lék Bueno sína fyrstu landsleiki fyrir Úrúgvæ.

FRÉTTIR31.08.2023, 15:53

Þórir Jóhann lánaður til Braunschweig (Staðfest) - „Best að kalla mig Thór"

Þýska félagið Eintracht Braunschweig tilkynnti rétt í þessu að Þórir Jóhann Helgason væri genginn í raðir félagsins. Miðjumaðurinn kemur á láni frá ítalska félaginu Lecce út tímabilið. Kaupmöguleiki er í lánssamningnum sem þýska félagið getur nýtt sér á meðan á lánsdvölinni stendur. Þórir er 22 ára Hafnfirðingur sem lék bæði með Haukum og FH áður en hann var seldur frá Fimleikafélaginu til Lecce árið 2021. Félagið komst upp í A-deildina á fyrsta tímabili Þóris og hélt sér uppi í vor. Alls hefur hann spilað 41 leik fyrir Lecce, skorað eitt mark og lagt upp eitt. Hann á að baki sextán landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.

FRÉTTIR31.08.2023, 15:21

Gruev til Leeds (Staðfest)

Búlgarski miðjumaðurinn Ilia Gruev er genginn í raðir Leeds United frá Werder Bremen og gerði fjögurra ára samning við enska Championship félagið. Gruev er 23 ára og hefur verið hjá þýska félaginu síðan 2015 þegar hann var í unglingaliðum félagsins.

FRÉTTIR31.08.2023, 14:17

Gylfi Sig til Lyngby (Staðfest) - Kom siglandi í kynningarmyndbandinu

Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir eins árs samning við danska félagið Lyngby. Félagið tilkynnti það á samfélagsmiðlum rétt í þessu en hann stóðst læknisskoðun í gær. Gylfi er að snúa aftur í fótboltann eftir rúmlega tveggja ára fjarveru.

FRÉTTIR31.08.2023, 14:11

Viðar Ari til HamKam (Staðfest)

Viðar Ari Jónsson er genginn í raðir Hamarkameratene í Noregi en í dag var tilkynnt að hann hefði skrifað undir samning út næsta tímabili. Viðar gekk í raðir FH í lok síðasta mánaðar og skrifaði þá undir samning sem gerði honum kleift að fara erlendis án ef spennandi tilboð kæmi þaðan. Hann er 29 ára og á að baki sjö landsleiki. Viðar spilaði fjóra leiki fyrir FH í þessum mánuði og skoraði eitt mark. FH fékk sjö stig úr leikjunum fjórum. Hjá HamKam hittir Viðar Ari fyrir KA-manninn Brynjar Inga Bjarnason sem gekk í raðir félagsins í upphafi árs frá Vålerenga. Brynjar hefur verið í byrjunarliði liðsins í tveimur síðustu leikjum sem báðir hafa unnist. HamKam er sem stendur í 11. sæti Eliteserien, fimm stigum fyrir ofan fallumspilssæti. Næsti leikur liðsins er gegn Bodö/Glimt á sunnudag.

FRÉTTIR31.08.2023, 12:19

Nat Phillips lánaður til Celtic (Staðfest)

Liverpool hefur lánað varnarmanninn Nathaniel Phillips til Skotlandsmeistara Celtic í Glasgow. Samkomulagið gildir til janúar. Koma Phillips er kærkomin viðbót fyrir Celtic sem hefur lent í meiðslavandræðum í öftustu línu.

FRÉTTIR31.08.2023, 10:27

Lukaku til Roma (Staðfest)

Belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku er orðinn leikmaður ítalska félagsins Roma. Hann kemur til Jose Mourinho og lærisveina á lánssamningi frá Chelsea sem gildir út tímabilið. <i>„Móttökurnar sem ég hef fengið frá félaginu og stuðningsmönnum hafa gert mig spenntan. Þær hafa gefið mér enn meiri eldmóð,"</i> segir hinn þrítugi Lukaku við heimasíðu Roma. Hann hefur leikið á láni hjá Inter tvívegis, varð Ítalíumeistari með liðinu 2021 og bikarmeistari á síðasta tímabili. Þá hjálpaði hann liðinu að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr á þessu ári.

FRÉTTIR30.08.2023, 23:53

Willum Þór búinn að framlengja (Staðfest) - „24... nei, 26"

<p>Willum Þór Willumsson er lykilleikmaður í liði Go Ahead Eagles í hollenska boltanum. Hann vakti mikla athygli með frammistöðu sinni á síðustu leiktíð og voru FC Twente og FC Utrecht áhugasöm um að fá hann í sínar raðir, auk fleiri félagsliða utan landsteinanna.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.