Fotbolti.net
31.08.23 - 15:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þórir Jóhann lánaður til Braunschweig (Staðfest) - „Best að kalla mig Thór"

Þórir Jóhann lánaður til Braunschweig (Staðfest) - „Best að kalla mig Thór"
Canon

Mynd: Eintracht Braunschweig

Þýska félagið Eintracht Braunschweig tilkynnti rétt í þessu að Þórir Jóhann Helgason væri genginn í raðir félagsins. Miðjumaðurinn kemur á láni frá ítalska félaginu Lecce út tímabilið.

Kaupmöguleiki er í lánssamningnum sem þýska félagið getur nýtt sér á meðan á lánsdvölinni stendur.

Þórir er 22 ára Hafnfirðingur sem lék bæði með Haukum og FH áður en hann var seldur frá Fimleikafélaginu til Lecce árið 2021. Félagið komst upp í A-deildina á fyrsta tímabili Þóris og hélt sér uppi í vor.

Alls hefur hann spilað 41 leik fyrir Lecce, skorað eitt mark og lagt upp eitt. Hann á að baki sextán landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.
„Þórir Jóhann hefur hlaupagetuna og tæknilegu getuna til að bæta skipulagið á milli varnar og sóknar á miðjunni okkar. Til viðbótar hefur hann hæfileikana til að skora mörk og er bæði góður í návígum á jörðinni og í loftinu," segir Peter Vollmann, yfirmaður fótboltamála hjá Braunschweig.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn til Braunschweig og er spenntur að kynnast félaginu og sjá stuðningsmennina. Ég get ekki beðið eftir því að spila í bláu og gulu treyjunni og fá að upplifa andrúmsloftið á Eintracht-Stadion. Ég vil gera mitt allra besta til að hjálpa liðinu að vinna leiki," sagði Þórir við undirskrift.

Braunschweig er í 16. sæti B-deildarinnar í Þýskalandi. Liðið er með þrjú stig eftir þrjá leiki. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn St. Pauli á morgun.

Þórir Jóhann lánaður til Braunschweig (Staðfest) - „Best að kalla mig Thór"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.