Fotbolti.net
31.08.23 - 23:21
Ívan Guðjón Baldursson

Dortmund kaupir Niclas Füllkrug (Staðfest)

Fullkrug að syngja þýska þjóðsönginn.

Fullkrug að syngja þýska þjóðsönginn.

Canon

Mynd: Getty Images

Borussia Dortmund er búið að festa kaup á Niclas Füllkrug, þýskum framherja sem kemur til félagsins úr röðum Werder Bremen.

Fullkrug er algjör markavél þar sem hann hefur skorað 45 mörk í 90 deildarleikjum með Bremen, auk þess að eiga 7 mörk í 9 landsleikjum fyrir Þýskaland.

Fullkrug er 30 ára gamall og borgar Dortmund aðeins 15 milljónir evra fyrir hann. Framherjinn gerir þriggja ára samning við félagið og er fjórði leikmaðurinn til að ganga í raðir félagsins í sumar.

Dortmund er einnig búið að kaupa Felix Nmecha og Marcel Sabitzer, auk þess sem Ramy Bensebaini kom á frjálsri sölu. Ayman Azhil kom einnig á frjálsri sölu en hann byrjar hjá varaliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.