Fotbolti.net
31.08.23 - 21:50
Ívan Guðjón Baldursson

Luton kynnir Teden Mengi (Staðfest)

Luton kynnir Teden Mengi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Luton Town eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og hafa þeir kynnt nýjan leikmann til leiks, varnarmanninn Teden Mengi.

Mengi er 21 árs gamall miðvörður sem kemur úr röðum Manchester United en hann hefur aðeins spilað 21 meistaraflokksleik á sínum fótboltaferli - aðeins tvo í treyju Man Utd.

Hann spilaði fyrir Derby County og Birmingham City á láni en átti erfitt uppdráttar og vonast til að finna taktinn hjá Luton.

Talið er að Luton greiði tæpar 2 milljónir punda fyrir Mengi, en kaupverðið er óuppgefið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.