Fotbolti.net
31.08.23 - 12:19
Elvar Geir Magnússon

Nat Phillips lánaður til Celtic (Staðfest)

Nat Phillips er farinn til Glasgow á láni.

Nat Phillips er farinn til Glasgow á láni.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur lánað varnarmanninn Nathaniel Phillips til Skotlandsmeistara Celtic í Glasgow. Samkomulagið gildir til janúar.

Koma Phillips er kærkomin viðbót fyrir Celtic sem hefur lent í meiðslavandræðum í öftustu línu.
Phillips, sem er 26 ára, er fyrir aftan Virgil van Dijk, Ibrahima Konate, Joe Gomez, Joel Matip og Jarell Quansah í goggunarröðinni á Anfield.

Phillips kom til Liverpool 2016 og hefur áður spilað á lánssamningi hjá Stuttgart og Bournemouth. Hann hefur enn ekki spilað fyrir Liverpool á þessu tímabili og spilaði aðeins fimm leiki á síðasta tímabili.

Hann lék 20 leiki fyrir Liverpool 2020-21 en þá spilaði hann 20 leiki, þar af þrjá í Meistaradeildinni. Liverpool glímdi við meiðslavandræði í vörn sinni það tímabil. Samningur Phillips við Liverpool er til 2025.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.