Bradley Barcola til PSG (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
PSG er búið að ganga frá félagsskiptum Bradley Barcola til sín frá Lyon.
Barcola er 20 ára kantmaður sem var ofarlega á óskalista Chelsea, en hann vildi einungis fara til PSG eftir að hann frétti af áhuga Frakklandsmeistaranna.
Talið er að PSG borgi 40 milljónir evra fyrir og mun Lyon halda veglegu hlutfalli af endursölurétti leikmannsins.
Barcola kom að 17 mörkum í 31 leik með Lyon á síðustu leiktíð og er lykilmaður í U21 landsliði Frakklands.
Brentford reyndi einnig að kaupa Barcola fyrr í sumar en þessi kaup koma sér vel fyrir PSG sem hefur átt í vandræðum með markaskorun á upphafi nýs tímabils.





