Nuamah dýrastur í sögu Lyon (Staðfest) - Caleta-Car kominn


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Franska félagið Lyon er búið að festa kaup á Ernest Nuamah, 19 ára kantmanni frá Gana.
Nuamah þykir gríðarlega mikið efni og á blaði kemur hann á lánssamningi frá belgíska félaginu RWD Molenbeek - með kaupskyldu næsta sumar.
Nuamah hefur aldrei spilað fyrir Molenbeek og vissi eflaust ekki af tilvist félagsins fyrr en Lyon keypti hann, en Lyon og Molenbeek eru systurfélög þar sem þau eru undir sama eignarhaldi.
Lyon notaði því Molenbeek til að kaupa Nuamah til að brjóta ekki fjármálareglur FIFA.
Lyon mun borga á milli 25 og 30 milljónir evra í heildina fyrir félagsskiptin, en Jeff Reine-Adelaide eru dýrustu kaup í sögu félagsins og kostaði hann 25 milljónir fyrir þremur árum.
Lyon er einnig búið að kræka í króatíska landsliðsmanninn Duje Caleta-Car. Hann kemur úr röðum Southampton og líkt og með Nuamah þá fær Lyon leikmanninn lánaðan. Það fylgir þó ekki kaupskylda með lánssamningnum, heldur aðeins kaupákvæði upp á 6 milljónir.
Caleta-Car er 26 ára gamall og fann aldrei taktinn hjá Southampton eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur í liði Marseille. Liverpool reyndi að kaupa hann í janúar 2021 en Marseille hafnaði tæplega 30 milljón evru tilboði.
Jake O'Brien er einnig kominn til Lyon eftir tvö ár hjá Crystal Palace. Hinn írski O'Brien er aðeins 22 ára gamall og vakti áhuga Lyon á sér með frábærri frammistöðu á láni hjá RWD Molenbeek á síðustu leiktíð.
Þá er hinn bráðefnilegi Skelly Alvero kominn til félagsins úr röðum Sochaux fyrir 7 milljónir, á meðan varnarmaðurinn Clinton Mata er kominn úr röðum Club Brugge fyrir 5 milljónir.
Að lokum var Lyon að staðfesta komu Mama Balde á láni frá Troyes. Baldé er 27 ára kantmaður og fylgir honum 8 milljón evru kaupmöguleiki.
???? All over town and soon in your stadium... 3??7?????????? pic.twitter.com/Nkhs683ocj
— Olympique Lyonnais ???????????????? (@OL_English) August 30, 2023


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images





