Celtic bætir þremur nýjum við hópinn (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Celtic var að staðfesta kaup á Luis Palma frá gríska félaginu Aris Thessaloniki, en hann er níundi leikmaðurinn sem skoska stórveldið kaupir í sumar.
Celtic er talið borga um 5 milljónir evra fyrir hinn 23 ára gamla Palma sem er kantmaður með sex landsleiki að baki fyrir Hondúras.
Hann er einn af átta nýjum leikmönnum sem Celtic hefur bætt við í sumar og á að fylla í skarðið sem Portúgalinn öflugi Jota skilur eftir.
Dýrasti leikmaðurinn er Maik Nawrocki, miðvörður sem kemur frá Legia Varsjá og kostar rúmar 5 milljónir. Nawrocki var lykilmaður í yngri landsliðum Póllands en á eftir að spila fyrir A-landsliðið.
Nawrocki gerir fimm ára samning við Celtic og mun reyna að leysa stöðu Svíans Carl Starfelt af hólmi. Gustaf Lagerbielke er þá einnig kominn til Skotlandsmeistaranna en hann er sænskur miðvörður sem kemur úr röðum Elfsborg og kostar rúmlega 3 milljónir evra.
Odin Thiago Holm, Yang Hyun-jun, Kwon Hyeok-kyu, Tomoki Iwata og Marco Tilio eru einnig komnir til félagsins, eins og má lesa um hér.
Celtic er einnig að ganga frá félagsskiptum Nat Phillips frá Liverpool.


Mynd: EPA





