Fotbolti.net
31.08.23 - 15:21
Elvar Geir Magnússon

Gruev til Leeds (Staðfest)

Gruev til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Búlgarski miðjumaðurinn Ilia Gruev er genginn í raðir Leeds United frá Werder Bremen og gerði fjögurra ára samning við enska Championship félagið.

Gruev er 23 ára og hefur verið hjá þýska félaginu síðan 2015 þegar hann var í unglingaliðum félagsins.
Hann hefur spilað átta landsleiki og er sjöundi leikmaðurinn sem Daniel Farke fær til Leeds í sumar.

Leeds hefur þegar fengið Ethan Ampadu, Sam Byram, Karl Darlow, Joel Piroe, Joe Rodon og Djed Spence síðan liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Leeds er með fimm stig eftir fyrstu fjórar umferðir Championship-deildarinnar en liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.