Fotbolti.net
31.08.23 - 21:59
Ívan Guðjón Baldursson

Forest festir kaup á Murillo (Staðfest)

Forest festir kaup á Murillo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest er búið að staðfesta félagsskipti brasilíska varnarmannsins Murillo frá Corinthians.

Forest greiðir um 14 milljónir punda fyrir Murillo sem gerir fimm ára samning við úrvalsdeildarfélagið. Hann er sjötti leikmaðurinn til að ganga til liðs við Forest í sumar en Gonzalo Montiel var einnig kynntur á dögunum.

Murillo fær treyju númer 40 hjá Forest og mun berjast við Willy Boly, Scott McKenna og Joe Worrall um byrjunarliðssæti.

Murillo er aðeins 21 árs gamall og á 27 leiki að baki fyrir meistaraflokk Corinthians.

Forest festir kaup á Murillo (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.