Fotbolti.net
31.08.23 - 22:33
Ívan Guðjón Baldursson

Massengo þrettándi inn hjá Burnley (Staðfest)

Massengo þrettándi inn hjá Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur farið mikinn á leikmannamarkaðinum í sumar og var að krækja í Han-Noah Massengo á frjálsri sölu frá Bristol City, en hann er þrettándi leikmaðurinn til að skrifa undir hjá meistaraflokki í sumar.

Massengo er 22 ára gamall Frakki og spilar sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann á 110 leiki að baki á þremur og hálfu ári í Bristol og 24 leiki fyrir yngri landslið Frakka.

Massengo gerir fjögurra ára samning við nýliða Burnley sem eru meðal annars búnir að næla sér í Sander Berge, James Trafford og Aaron Ramsey í sumar.

Vincent Kompany er við stjórnvölinn hjá Burnley og viðurkennir Massengo að samræður við hann hafi auðveldað honum að taka ákvörðunina.

Massengo segist vera spenntur að reyna fyrir sér í deild þeirra bestu, en Burnley er án stiga eftir tvo fyrstu deildarleikina.

Jóhann Berg Guðmundsson er einnig hjá Burnley og lék allan leikinn í fyrsta sigri tímabilsins sem kom er liðið heimsótti Nottingham Forest í deildabikarnum á dögunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.