Fotbolti.net
31.08.23 - 14:11
Elvar Geir Magnússon

Viðar Ari til HamKam (Staðfest)

Viðar í leik með FH.

Viðar í leik með FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Viðar Ari Jónsson er genginn í raðir Hamarkameratene í Noregi en í dag var tilkynnt að hann hefði skrifað undir samning út næsta tímabili.

Viðar gekk í raðir FH í lok síðasta mánaðar og skrifaði þá undir samning sem gerði honum kleift að fara erlendis án ef spennandi tilboð kæmi þaðan. Hann er 29 ára og á að baki sjö landsleiki.

Viðar spilaði fjóra leiki fyrir FH í þessum mánuði og skoraði eitt mark. FH fékk sjö stig úr leikjunum fjórum.

Hjá HamKam hittir Viðar Ari fyrir KA-manninn Brynjar Inga Bjarnason sem gekk í raðir félagsins í upphafi árs frá Vålerenga. Brynjar hefur verið í byrjunarliði liðsins í tveimur síðustu leikjum sem báðir hafa unnist.

HamKam er sem stendur í 11. sæti Eliteserien, fimm stigum fyrir ofan fallumspilssæti. Næsti leikur liðsins er gegn Bodö/Glimt á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.