Fotbolti.net
01.09.23 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Guendouzi til Lazio (Staðfest) - Alberto framlengir

Guendouzi á sjö landsleiki að baki fyrir sterkt landslið Frakka og var í hópnum sem endaði í öðru sæti á HM í Katar.

Guendouzi á sjö landsleiki að baki fyrir sterkt landslið Frakka og var í hópnum sem endaði í öðru sæti á HM í Katar.

Canon

Mynd: Getty Images

Lazio er búið að krækja í franska miðjumanninn Matteo Guendouzi á lánssamningi frá Marseille sem gildir út tímabilið.

Með lánssamningnum fylgir kaupmöguleiki sem verður að kaupskyldu ef ákveðnum skilyrðum verður mætt.

Guendouzi er 24 ára gamall og er með tvö ár eftir af samningi sínum við Marseille. Hann lék fyrir Arsenal í fjögur ár áður en hann var seldur aftur til Frakklands.

Guendouzi mun berjast við menn á borð við Matias Vecino og Danilo Cataldi um sæti í byrjunarliðinu.

Lazio er búið að krækja í marga nýja leikmenn í sumar, þar á meðal eru Daichi Kamada, Taty Castellanos og Nicoló Rovella. Ítalska félagið borgar eina milljón evra fyrir lánssamning Guendouzi og mun kaupa hann fyrir um sautján milljónir til viðbótar.

Þá er Luis Alberto að gera nýjan fimm ára samning við félagið og binda þar með enda á sögusagnir sem sögðu hann vera á leið til Sádí-Arabíu. Fjölmiðlar á Ítalíu hafa greint frá þessu en Lazio á eftir að tilkynna samninginn.

Alberto hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Lazio undanfarin ár en hann er 30 ára gamall og hefur spilað 263 leiki fyrir félagið.

Hann er vanalega með fast byrjunarliðssæti á miðjunni en hefur spilað þar ásamt Sergej Milinkovic-Savic undanfarin ár, sem er farinn til Al-Hilal í Sádí-Arabíu.

Guendouzi til Lazio (Staðfest) - Alberto framlengir
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.