Bologna fær liðsstyrk frá Leicester og Milan (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Bologna hefur verið duglegt að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og er búið að krækja í nokkra áhugaverða leikmenn.
Bologna staðfesti félagsskipti Victor Kristiansen í gær, en hann kemur á lánssamningi frá Leicester City sem gildir út tímabilið. Kristiansen er tvítugur Dani sem var lykilmaður í liði FCK áður en Leicester keypti hann fyrir 20 milljónir evra og gerði hann um leið að dýrasta leikmanni sem hefur nokkurn tímann verið seldur úr danska boltanum.
Kristiansen var keyptur við síðustu gluggalok og hefur því aðeins verið hjá Leicester í sjö mánuði. Það er kaupmöguleiki með í lánssamningnum sem hljóðar upp á 35 milljónir evra.
Belgíski kantmaðurinn Alexis Saelemaekers er einnig kominn til Bologna og fylgir talsvert ódýrari kaupmöguleiki með lánssamningnum hans frá AC Milan.
Saelemaekers á 140 leiki á þremur og hálfu ári hjá Milan en passar ekki inn í áform Stefano Pioli þjálfara eftir að félagið krækti í öfluga kantmenn fyrr í sumar. Bologna getur keypt Saelemaekers fyrir um 9 milljónir evra ef félaginu lýst vel á hann.
Dýrasti leikmaðurinn sem Bologna hefur keypt í sumar er sænski kantmaðurinn Jesper Karlsson sem er 25 ára og á 11 landsleiki að baki.
Karlsson var frábær með AZ Alkmaar í hollensku deildinni á síðustu leiktíð og borgar Bologna 10 milljónir evra fyrir hann, auk þess sem AZ heldur góðu prósentuhlutfalli af endursölu leikmannsins.
Karlsson er ekki eini leikmaðurinn sem Bologna keypti af AZ, því Sam Beukema er einnig kominn og kostaði hann 7 milljónir evra. Beukema er 24 ára Hollendingur sem ólst upp hjá Go Ahead Eagles og var þar í fjögur ár áður en hann skipti til AZ Alkmaar sumarið 2021.
Auk þeirra er Dan Ndoye kominn á láni frá Basel fyrir 2 milljónir evra með kaupskyldu upp á 8 milljónir til viðbótar. Ndoye er 22 ára Svisslendingur sem var lykilmaður upp yngri landsliðin og er með einn leik að baki fyrir A-landsliðið. Hann spilar sem vinstri kantur.
Þá festi félagið kaup á Oussama El Azzouzi frá Union Saint-Gilloise í Belgíu fyrir 2 milljónir og krækti í tvo lánsmenn sem stóðu sig vel á síðustu leiktíð - Stefan Posch frá Hoffenheim og Nikola Moro frá Dynamo Moskvu.
Bologna hefur sýnt flotta spilamennsku á upphafi nýs tímabils þrátt fyrir að vera aðeins með eitt stig eftir tvær umferðir. Liðið var óheppið að tapa gegn AC Milan og náði svo jafntefli gegn Juventus í síðustu umferð. Næsti leikur er á heimavelli gegn nýliðum Cagliari sem voru að krækja í Andrea Petagna frá Monza.
Velkommen Victor, we can't wait to see you too ????????#WeAreOne pic.twitter.com/pBWecmF7R7
— Bologna FC 1909 (@BolognaFC1909en) August 30, 2023


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA





