Henderson kominn til Crystal Palace (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Crystal Palace er búið að festa kaup á Dean Henderson, markverði frá Manchester United, fyrir um 20 milljónir punda.
Henderson er 26 ára gamall og hefur staðið sig vel á lánstímabilum með Sheffield United og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni. Hann reyndi sitt besta til að berjast um byrjunarliðssæti hjá Man Utd en heldur nú á önnur mið.
Man Utd mun staðfesta kaup á tyrkneska markverðinum Altay Bayindir frá Fenerbahce fyrir rétt rúmar 4 milljónir punda. Hann verður varamarkvörður fyrir André Onana.
Henderson á einn A-landsleik að baki fyrir England og var eftirsóttur af ýmsum úrvalsdeildarfélögum í sumar.
This service is SOUTHBOUND. pic.twitter.com/XPVkw5Rh3G
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) August 31, 2023


Mynd: EPA





