Fotbolti.net
31.08.23 - 18:52
Ívan Guðjón Baldursson

Sheffield fær Luke Thomas frá Leicester (Staðfest)

Sheffield fær Luke Thomas frá Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Sheffield United er búið að krækja í Luke Thomas, 22 ára vinstri bakvörð frá Leicester City.

Thomas á 85 leiki að baki fyrir Leicester en kom aðeins við sögu í 17 úrvalsdeildarleikjum er liðið féll á síðustu leiktíð.

Thomas er ekki í áformum Enzo Maresca hjá Leicester þar sem Maresca notast ekki við klassíska vinstri bakverði, líkt og Mikel Arteta og Pep Guardiola gera hjá Arsenal og Manchester City.

Thomas er einn af mörgum bakvörðum sem hafa verið orðaðir við Manchester United á síðustu dögum eftir meiðsli Luke Shaw. Hann var lykilmaður í U21 landsliði Englands sem vann HM í sumar og verður áhugavert að fylgjast með hvort honum takist að taka stökkið upp í A-landsliðið.

Hjá Sheffield mun Thomas berjast við Yasser Larouci og Max Lowe um sæti í byrjunarliðinu, þar sem Paul Heckingbottom notast við 3-5-2 leikkerfi með vængbakvörðum.

Sheffield fær Luke Thomas frá Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.