FRÉTTIR14.08.2023, 20:06

Sheffield United er búið að kaupa Gustavo Hamer frá Coventry City fyrir óuppgefið kaupverð. Talið er að Sheffield borgi um 15 milljónir punda fyrir og þá mun Coventry halda hlutfalli af endursölurétti leikmannsins.

FRÉTTIR14.08.2023, 19:33

Denis Zakaria er genginn til liðs við AS Mónakó sem leikur í frönsku deildinni og endaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR14.08.2023, 17:48

Chelsea er búið að kynna Moisés Caicedo til leiks sem nýjan leikmann félagsins.

FRÉTTIR14.08.2023, 16:16
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir er komin aftur í Val eftir að hafa verið á láni á Selfossi fyrri hluta tímabilsins.
FRÉTTIR14.08.2023, 14:30
Besiktas hefur staðfest komu Alex Oxlade-Chamberlain til félagsins en hann kemur frá Liverpool á frjálsri sölu.
FRÉTTIR14.08.2023, 14:00
Fyrrum landsliðskonan Sigríður Lára Garðarsdóttir er búin að fá félagaskipti yfir í ÍBV.
Hún fær leikheimild með liðinu á morgun og getur því spilað með ÍBV seinni hluta tímabilsins.
FRÉTTIR14.08.2023, 12:26
Afturelding hefur fengið til sín sóknarmanninn Ivo Braz frá botnliði Ægis. Ivo hefur skorað sjö mörk í sextán leikjum fyrir Ægi og var langmarkahæsti leikmaður liðsins áður en hann var fenginn í Mosfellsbænum.
Ivo er Portúgali sem lék bæði á köntunum sem og fyrir aftan fremsta mann í leik Ægis gegn Þór á dögunum en þar skoraði Ivo eitt mark, úr vítaspyrnu.
FRÉTTIR14.08.2023, 09:51
Stjarnan hefur fengið til sín danska miðvörðinn Kristian Riis. Samningur hans við Lyngby rann út eftir síðasta tímabil.
Riis er 26 ára og hefur leikið 23 leiki í dönsku úrvalsdeildinni. Hann kom upp úr frægu unglingastarfi Midtjylland. Hann lék fyrstu átta leiki Lyngby á síðasta tímabili en meiddist svo illa á hné og gat ekki spilað meira á tímabilinu. Freyr Alexandersson þjálfar Lyngby.
FRÉTTIR14.08.2023, 09:28
Everton hefur fengið til sín enska vængmanninn Jack Harrison á lánssamningi frá Leeds United út tímabilið.
Aston Villa reyndi á síðustu stundu að fá Harrison en Everton náði að landa honum og hann gekkst undir læknisskoðun eldsnemma í morgun.
FRÉTTIR14.08.2023, 09:21
Real Madrid varð fyrir áfalli í síðustu viku þegar markvörðurinn Thibaut Courtois sleit krossband á æfingu.
Það tók þó ekki langan tíma fyrir spænska stórveldið að tryggja sér markvörð til að fylla hans skarð.
FRÉTTIR14.08.2023, 08:35
West Ham hefur keypt miðjumanninn James Ward-Prowse frá Southampton en kaupverðið er um 30 milljónir punda. Enski landsliðsmaðurinn er 28 ára og skrifar undir fjögurra ára samning.
FRÉTTIR13.08.2023, 11:57
Roberto Mancini er hættur þjálfun ítalska landsliðsins en þetta kemur fram í yfirlýsingu ítalska fótboltasambandsins í dag.
FRÉTTIR13.08.2023, 08:30

Diego Costa er genginn til liðs við Botafogo í Brasilíu. Costa er fæddur í Brasilíu en lék með spænska landsliðinu á sínum ferli.

FRÉTTIR12.08.2023, 18:46

Adama Traore er genginn til liðs við Fulham á frjálsri sölu eftir að samningurinn hans við Wolves rann út í sumar.

Hann gerir tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR12.08.2023, 16:16

Snædís María Jörundsdóttir, sem hefur komið við sögu í 12 af 15 leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni í sumar, er farin til FH á lánssamningi sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR12.08.2023, 15:40

Franska félagið Nantes er búið að tryggja sér brasilíska kantmanninn Marquinhos á lánssamningi frá Arsenal sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR12.08.2023, 15:16

Suður-kóreski kantmaðurinn Son Heung-min er nýr fyrirliði Tottenham Hotspur. Hann tekur við fyrirliðabandinu af hinum 36 ára gamla Hugo Lloris sem hefur fengið leyfi til að yfirgefa Tottenham í sumar, þó hann eigi eitt ár eftir af samningi.

FRÉTTIR12.08.2023, 13:48

KV er búið að ráða Viktor Bjarka Arnarsson í þjálfarastarfið hjá félaginu á samningi sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR12.08.2023, 12:51

Burnley er búið að krækja í kantmanninn efnilega Wilson Odobert sem kemur til félagsins úr röðum Troyes í Frakklandi.

FRÉTTIR12.08.2023, 08:41
PSG tilkynnti rétt í þessu frá kaupum á Ousmane Dembele sem kemur til franska félagsins frá Barcelona.
Franski kantmaðurinn hefur verið hjá Barcelona síðan 2017 en þá var hann keyptur á risaupphæð frá þýska félaginu Dortmund. Hann kom í kjölfar sölu Barcelona á Neymar og varð Dembele næst dýrasti leikmaður í sögunni á eftir Neymar.
Dembele er 26 ára franskur landsliðsmaður sem glýmdi talsvert við meiðsli hjá Barca en lék þó í heildina 185 leiki og skoraði 40 mörk fyrir félagið á sex tímabilum.