Viktor Bjarki tekinn við KV (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV er búið að ráða Viktor Bjarka Arnarsson í þjálfarastarfið hjá félaginu á samningi sem gildir út tímabilið.
Viktor Bjarki er ráðinn eftir að KV samdi við Hjörvar Ólafsson um starfslok í gær.
KV situr á botni 2. deildar með 8 stig eftir 15 umferðir og gæti fallið niður um deild annað árið í röð, eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í fyrra.
Viktor er 40 ára gamall og var meðal annars á mála hjá FC Utrecht í Hollandi og Lilleström í Noregi á ferli sínum sem fótboltamaður. Á Íslandi gerði hann garðinn frægan sem leikmaður Víkings R. og KR en lék einnig fyrir Fylki, Fram og HK.
Viktor Bjarki hefur þjálfað innan herbúða HK og KR eftir að hann lagði fótboltaskóna á hilluna.
Tilkynning
— KV Fótbolti (@KVfotbolti) August 12, 2023
Viktor Bjarki Arnarsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari KV og gerir hann samning út tímabilið ????
Við hlökkum til að sjá hann á eftir í boxinu á AUTO PARK.#KVnation pic.twitter.com/otiklXYzDj




