Fotbolti.net
12.08.23 - 16:16
Ívan Guðjón Baldursson

FH fær Snædísi frá Stjörnunni (Staðfest)

FH fær Snædísi frá Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz

Snædís María Jörundsdóttir, sem hefur komið við sögu í 12 af 15 leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni í sumar, er farin til FH á lánssamningi sem gildir út tímabilið.

FH hefur reynst spútnik lið sumarsins í Bestu deildinni og er í fjórða sæti sem stendur með 22 stig eftir 15 umferðir. Stjarnan, sem endaði í öðru sæti í fyrra, er með 20 stig.

Snædís María er efnilegur framherji en hún er fædd árið 2004 og á 7 mörk í 17 landsleikjum með sterku U19 liði Íslands.

Hún var lánuð til Keflavíkur á seinni hluta síðasta tímabils og fer núna til FH og reynir að hjálpa Hafnfirðingum í baráttunni um Evrópusæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.